Prufa
4.10.2008 | 15:27
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Finnland
1.7.2008 | 20:38
Nú er ég nýkomin frá Finnlandi, land gufubaðanna og múmmínálfa. Ferðin gekk áfallalaust fyrir sig, sem er gerist ekki oft þegar ég ferðast ein. Á það til nefnilega að missa af flugvél, gleyma vegabréfi, fara út úr lest á vitlausum stað og svo framleiðis. Tja, það eru ekki allir eins og ég.
En já ferðin byrjaði á flug með icelandair til Helsinki og svo vel vildi til að samstarfskona mín var á leið í sömu vel. Þannig að við sameinuðumst um bíl á flugvöllinn. Hún er með saga class kort og fórum við í sér innritun fram hjá löngu löngu röðinni.... hehe, gott að þekkja fólk ;) Fór ég síðan með henni í saga lounge sem er vel útbúin og gátum við fengið okkur morgunmat og setið í næði. Ferðin tók 3 klst og hitti ég vinkonu mína á fluvellinum Tiinu en hún var að koma frá Sjanghæ. Í Helsinki átti ég svo bókað hótelherbergi á Radisson SAS sem ég fékk út á punkta og þurfti ekki að borga krónu. Hótelið var af betri sortinni enda 4stjörnu hótel. Fór snemma að sofa því að ég þurfti að vakna kl.4:30 eða 1:30 að íslenskum tíma. Flugið frá Helsinki til Oulu var mjög fínt en í fyrsta skiptið á öllum mínum flugferli fór ég inn í flugvélina um rassgatið!!!! Suvy tók svo á móti mér og fórum við beint í að leggja okkur þar sem við vorum báðar illa sofnar. Fórum í spa, fór nakin í gufu..... með öðru fólki...... með nöktum karlmönnum. Frekar traumatísk lífsreynsla! Daginn eftir fórum við í ferðalag til Kemi sem er klst akstur og er í Lapplandi. Þar var mikið drukkið enda miðsumarshelgi en ekki ég samt. Grillað, farið í heitann ( sem var eiginlega bara volgur) pott. Líka í saunu, grilluðum alveg helling. Fékk alls 26 moskítóbit og já líka ofnæmisviðbrögð við þeim! Þannig að ég hef kýli víðsvegar um líkamann. Mjög hlýjar móttökur frá finnskum flugum. Svo skruppum við til Svíþjóðar og versluðum á slikk í fabrikbutik og outlet búðum. Í Oulu var líkað verslað ;) og farið á ströndina, eina daginn sem var sól by the way annars var kalt, rigning eða skýjað. Svo fór ég á hestbak, ég hélt að íslenskir hestar væru sæmilega stórir en eru eins og dvergar í samanburði við finnska hesta. Mér fannst eins og ég væri á fílsbaki svo stórir voru þeir. Mér var boðið í kaffi til foreldra Tiinu og Í grill og saunu í boði mömmu Suvy. Allir voru svo nice eitthvað og svo miðvikudagskvöldið hélt Suvy partý heima hjá sér og bauð vinkonum sínum. Svo var haldið á diskótek þar sem dansað var fram eftir morgni. Seinasta kvöldið fékk ég svo finnska matseld heima hjá Tiinu. Um nóttina var ég svo í næturlest. Var svo heppin að fá far frá flugvellinum og að bílnum í staðin fyrir að taka rútuna og leigubíl.
Þannig að ég sé ekki eftir að hafa farið í þessa ferð. Þurfti svo á þessu að halda.
Jæja vona að einhverjir hafi gaman að lesa þetta blogg og endilega commenta ef þú lest þetta.
Kveðja Sigurveig
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sveitin
23.5.2008 | 21:05
Heil og sæl! Seinasta helgi var farið í sveitina hjá tengdapabba og frú. Sveitin er nánar tiltekið í Lundarreykjadal, stutt frá Borgarnesi og heitir Skarð. Vorum við yfir nótt og fékk ég að fylgjast með sauðburðinum. Fullt af litlum memeum að fæðast. Fékk ég aðstoða aðeins við að flytja til fé. Svo fékk ég það verkefni að gefa einu meme að drekka, sem var heldur klaufalegt við drykkjuna. Fræddist ég svo um heim kindanna og varð margs vísari. Ekki vissi ég um að kindur stælu lömbum frá öðrum kindum þegar þær eru að fara að bera sjálfar. Merkilegt. Svo fékk ég að sjá tryppið mitt, hana flórens. En ég fékk folald í útskriftargjöf og það er orðið 2ja vetra gamalt. Set inn myndir síðar. Hún var svo forvitin að hún kom með snoppuna alveg að nefinu mínu og áttum við svona rosalegt bonding moment. Eða alveg þangað til að hún ætlaði að bíta í nefið mitt. Árni fékk að sjá sitt tryppi sem er árinu eldri en Flórens og heitir Lögmanns grána. Rosa gaman í sveitinni. Fengum fínt veður og fórum við skötuhjúin í göngutúr, meðal annars til að skoða tryppin okkar og folandið sem hafði fæðst um nóttina. Þurftum við að fara yfir skurð sem lækur var í. Skurðurinn var heldur langur og ákvað Sigurveig að stökkva yfir skurðinn eins og hún gerði forðum daga á Fáskrúðsfirði. Eitthvað misreiknaði ég mig og stökk beint ofan í lækinn og RENNBLOTNAÐI! Mikið gátum við hlegið að þessu, enda hafði ég sagt rétt áður en stokkið var að það mikð væri nú fyndið ef þetta tækist nú ekki. Nú Árni stökk á öðrum stað en lenti beint ofan í drullupolli. Þannig að ég var blaut en hann drullugur.
Svo er Mamma mín og stjúpi að koma suður. Mamma er að fara vonandi í leiser á augum og Úlli ...... uhm ætlar að halda í hendina á henni. Þau verða í séríbúð í bænum en ég á nú von á að þau kíkji nú við og komi nú í grill. En ég var að kaupa grill fyrir heimilið, það hefur nú verið notað oftar en einu sinni og hef ég uppgötvað leynda hæfileika hjá Jóa litla bróður við að grilla og hefur hann verið notaður óspart við grillun.
En spurning dagsins, hvað á Sigurveig að gera í fríinu sínu? Er í fríi í heilan mánuð og það er ekkert planað.
Kveðja Sigurveig
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Úr kjálkalið.
8.5.2008 | 12:45
Jæja, það var ýtt við mér að blogga so... here it comes. Nei nei, það er ágætt að minna mann á. Alveg svoleiðis margt að segja.
Fór til kjálkasérfræðings í gærmorgun. Hef verið með vandamál í kjálkanum, hann smellur þegar ég er að geispa, borða, bíta í. Frekar hvimleitt og svo heyri ég þetta svo vel af því að kjálkaliðurinn er við eyrað. Ég var búin að búa mig undir að þetta væri dýrt spaug, en nauðsynlegt, þar sem ég fæ verki líka í vöðvana í kringum kjálkaliðinn. Þurfti ekki að borga fyrir heimsóknina eina og sér en þetta mun safnast upp í a.m.k. 80.000kr. Aha, karlinn sem heitir Karl... hehe sagði að öllum líkindum væri þetta í tengslum við slysið mitt sem var fyrir ári síðan. Einkennin komu bara u.m.b. hálfu ári eftir slysið þar sem ég hjakkast á liðþófa sem er ekkert sterkur og kjálkaliðurinn óstabílasti liður í líkamanum. Arg á ég endalaust að líða fyrir þetta klaufaslys? Sigurveig er KLAUFI. Jæja Karl sagði líka að ég væri með of liðleika í liðum almennt og mér væri hættara við að togna og festa liði. Hann spjallaði heillengi við mig og fékk mjög góða útskýringar. Ég sagðist ekki hafa dottið í fyrstu af því að einkennin komu svo löngu síðar. En þá eru víst tengsl á milli. Hef því tognað í kjálkanum líka og viðhaldið því svo með því að gnísta tönnum. Þannig að ég þarf að sofa með góm/spelku. Smellirnir eru sem sagt Sigurveig að fara úr og í kjálkalið.
Svo er mín byrjuð í líkamsræktarátaki. Ætla að reyna að komast í form. Skráði mig á námskeið til að fá smá aðhald í Hreyfingu. Aðstaðan þar er svo 100x betri en í baðhúsinu. Var orðin þreytt á tækjabúnaði í baðhúsinu, engin endurnýjun í a.m.k ár. En í Hreyfingu er allt nýtt enda nýtt húsnæði. hægt er að fara í gufu úr kvennaklefanum. Jæja mín verður aldeilis flott eftir 2 mánuðina. Gott að styrkja vöðvana til að styðja við þennann of liðleika. 
Jæja læt þetta gott heita í bili.
Sigurveig sem er klaufi með of liðleika.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Næturvakt
11.4.2008 | 02:28
Jæja er ekki kominn tími á blogg? Annars er ég ekkert viss um að sé svo margir sem lesa þetta. Fín afþreying fyrir mig á næturvaktinni. Enn er ég að vinna á bráðamóttöku barna. Var líka að vinna seinustu nótt. Sem var frekar furðuleg vakt þar sem það kom ekkert barn frá kl:01-08 og enginn hringdi heldur sem er mjög óvanalegt. Ætli faraldrarnir sem koma á veturna að vera búnir. Neh maður þorir ekki að vona.
Var um seinustu helgi á árshátíð hjá vinnunni hans Árna. Þar komu skemmtileg comment eins og "já við héldum að Árni væri að ljúga því að hann ætti kærustu". En ég hef aldrei sótt neina skemmtun hjá vinnunni hans sem er Saga Capital. Það hittist þannig á að ég hef ekki geta komist. En nú var ss. borgað fyrir mig flug og matur og hótel. Flogið var til Akureyrar og rúta þaðan á Mývatn. Vorum látin koma okkur fyrir á hótelinu svo var boðið upp á súpu og brauð. Á hótelherberginu beið kampavínsflaska og geisladiskur með Hjaltalín. Árni afhenti mér veski sem er gerð úr fiskiroði og var frá vinnunni hans. Þvínæst var haldið í ratleik í Dimmuborgum þar sem var keppst í 6 liðum. Ég var í rauða liðinu. Þar var ss. hlaupið í 10cm háum snjó og frosti. Við skulum segja að ég hafi ekki getað gengið eðlilega í 2 daga á eftir. Liðið hans Árna vann keppnina. Uhm að keppni lokinni fórum við svo í laugar á Mývatni. Þvílíkt þægilegt. Fyrir borðhaldið gátum við gert okkur klár og hafði ég keypt mér prinsessukjól (fjólublár) til að vera í og Árni varð ennþá skotnari í mér, þegar ég var búin að punta mig. Fordrykkur var í boði og maturinn var 4ra rétta og í lokin kaffi og konfekt. Skemmtiatriði voru rosa skemmtileg en ég skildi nú ekki alveg húmorinn. Svo var dansað frá klukkan 22-03 og svo á fætur klukkan 10. Til að fara í flug heim. Ég hef svo verið alveg 4 daga að jafna mig, þvílíkt þreytt eitthvað. Gleymdi að segja að ég vann 16 klst á föstudeginum frá 16-08.
Hvað voðalega skrifar maður mikið þegar kemst á skrið. Veit nú ekki hvort það sé nokkuð mikið vit í því sem ég er að skrifa. Fór í göngu á Esjuna í dag með Árna og Elínu mömmu hans. Aldrei farið á Esjuna áður og ég held svei mér þá að ég geti ekki gengið á morgun. Merkilegt hvað ég fór samt létt með að fara upp. Niðurleiðin var öllu verri þar sem ég var á strigaskóm og rann frekar mikið. Svo var saumaklúbbur og síðan næturvakt. Ég er nú ekki alveg í lagi. Kann greinilega ekki að slaka á....
Jæja læt þetta gott heita í bili, lofa að blogga meira fljótlega. Á eftir að segja frá snúruþjófnaðinum og breytingu á ferðalagi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýtt ár, nýtt blogg!
27.1.2008 | 05:52
Langaði eitthvað til að skrifa smávegis, þá er vandinn hvar eigi að byrja.
Ég verð því miður að játa það að ég er búsett í Reykjavík. Þeir sem fylgjast eitthvað með fréttum, vita kannski að spilling er við völd í Reykjavík. Hvað er það, mér finnst íslendingar ekki mótmæla nógu mikið því sem okkur er misboðið. Mér finnst flott að borgarfundinum hafi verið mótmælt eins mikið og raun bar vitni. Við eigum að láta í okkur heyra. Ég var nú bara heima hjá mér, þar sem ég var í fríi og vissi ekki af þessum fundi. Veit nú ekki hvort ég hefði farið samt sem áður. Ég hálf vorkenndi Ólafi samt, nýja borgastjóranum. Hann á ósköp bágt karlinn. En það gefur honum samt ekki leyfi til að eyða fé borgarbúa í gömul hús sem eru að hruni komin. 530 milljónir mættu betur fara í annað.
Jæja næsta mál á dagskrá. Veðrið.... já því ekki, hvað er málið með þetta veðurfar. Ég geri ekki annað en að skafa bílinn minn. Hef sem betur fer ekki orðið fyrir neinu óhappi. Oh, mætti ég biðja um betra veður takk?! Talandi um betra veður, við hjónaleysin erum að fara til Rhodos í sumar. Hlakka ekkert smá til. Þeir sem ekki vita, þá er Rhodos ein af grísku eyjunum. Förum í byrjun júní 7.-14. til að fá smá lit. Held reyndar að minn litur verði nú ekki annar en bleikur! 
Vinnan mín. Ég er að vinna á Bráðamóttöku barna. Er svo heppin að vera að gera það sem ég hef mikla ánægju af, fólkið sem ég vinn með er frábært. Mórallinn er brilliant og gaman að mæta í vinnuna. Það sem ég hef verið að ströglast við er hins vegar skipta á milli vakta. Það er að segja, frá kvöldvakt og næsta dag er kannski morgunvakt, þá næst ekki nema kannski svona 6-7 klst svefn. Svo ef maður asnast til að leggja sig eftir þannig vaktir er vesen að sofna um kvöldið. Svo eru það blessuðu næturvaktirnar. Já ágætar fyrir sig, nema það þýðir enginn Árni til að kúra með og hlýja sér. En það sem er verst við þær er að snúa til baka. Geta þá sofið á nóttunni og vakað á daginn. Það er frekar erfitt. Ef ekki tekst að snúa sökum agaleysis
(ég er vonlaus í þessu) þá getur maður átt það á hættu að vakna upp á nóttunni og geta ekki sofnað aftur. Þá sefur maður á daginn og vakir á nóttunni. Já, ég er sem sagt í vinnunni núna að skrifa þennann gáfulega pistil og klukkan er 05:50 um nóttu, þegar flestir eru sofandi.
Jæja, vonast til að vera dugleg að blogga, en lofa engu.
Kveðja Sigurveig hjúkka
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)






